Baldur Halldórsson hóf smíði trillubáta á Hlíðarenda við Akureyri árið 1953, eftir að hafa lokið meistaraprófi í skipasmíðum. Nokkru síðar fór hann að flytja inn ýmsar vörur til skipasmíða og árið 1977 gerðist hann umboðsmaður á Íslandi fyrir Vetus den Ouden N.V., eitt stærsta fyrirtæki í Evrópu sem framleiðir, selur vörur og vélbúnað fyrir minni fiskiskip.
Alls hafa verið framleiddir hjá okkur rúmlega 100 fiskibátar, auk endurbyggðra báta og hverskonar breytinga. Þá hafa verið fluttar inn og seldar um 175 díselvélar. Auk þess er um að ræða innflutning frá fleiri aðilum, s.s. skipalakk og botnmálningu frá ítalska fyrirtækinu Veneziani og handdælur o.fl.